Dagskrá Sail Húsavík 16. – 23. júlí
Laugardagur 16. júlí
16:00 – 17:00 Á hafnarsvæðinu
Bryggjurúnturinn – komdu og upplifðu hafnarstemninguna
MS-Sjøkurs, skólaskip frá Kristiansand í Noregi, seglskútur og bátar frá Íslandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi verða komin til hafnar. Harmonikkuleikarar úr Harmonikkufélagi Þingeyinga leika tónlist fyrir gesti og gangandi. Hvetjum alla til að koma og skoða skipin.
20:00 – 21:30 Á hafnarsvæðinu
Setningarathöfn Sail Húsavík.
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings og Per-Inge Lindquist, formaður Norræna strandmenningarverkefnisins flytja ávörp. Dag Wernø Holter sendiherra Noregs opnar Sail Húsavík.
Tónleikar með Kristjáni Jóhannssyni og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Sunnudagur 17. júlí
09:00 – 20:00 Á hafnarsvæðinu
Uppsetning sýninga og opnanir
Opnaðar verða sýningar á listum og handverki. Gestum og gangandi gefst tækifæri til að fylgjast með þegar verið er að reisa naust, handverksfólk kemur sér fyrir og taka þátt í opnun listsýninga.
11:00 – 12:00 Um borð í Húna II.
Sjómannahelgistund
12:00 – 13:00 Í hátíðartjaldi
Sögur af sjónum
Viðtöl við fólk sem er hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur strandmenningu. Í dag sitja fyrir svörum Dag Wernø Holter sendiherra Noregs á Íslandi og Tore Friis-Olsen frá Strandmenningarfélagi Noregs og aðalskipuleggjendi ferðarinnar með MS Sjøkurs. Áhorfendum gefst kostur á að spyrja spurninga úr sal. Gestir geta keypt ljúffenga fiskisúpi Naustsins.
16:00 – 18:00 Um borð í MS Sjøkurs
Hafið lokkar og laðar
Íslensk tónlist verður leikin af vinylplötum þar sem sjómannslífið er viðrað í tónlist. Spiluð verða lög sem hafa gegnum tíðina ornað sjómönnum og ástvinum þeirra um Norðurlöndin öll og mörg hver orðið vinsæl meðal almennings. Á milli laga verður trollið dregið inn, fullt af fróðleik um lögin, listamennina og tíðarandann. Kynnir verður Kristján Frímann.
17:00 – 18:00 Í Húsavíkurkirkju
Tónleikar með Rannveigu Káradóttur.
20:00 – 22:00 Á hátíðarsviði
Íslenskir og færeyskir þjóðdansar.
22:00 – 23:00 Í hátíðartjaldi
Tónleikar með Blágresi og Einari Má. Þau spila melódíska bluegrass tónlist við texta Einars Más.
Alla daga
09:00 – 20:00 Garðarshólmur
I Vesterveg.
Sýningin er afrakstur samvinnu listamanna frá Íslandi, Hjaltlandseyjum og Noregi og er verkefnið styrkt af norrænum sjóðum. Fram yfir aldamótin 1300 voru löndin sem liggja að Vestur-Atlantshafinu eitt menningarsvæði, hafið var samgönguleiðin og Björgvin miðstöð verslunar. Sameiginlegs menningararfs gætir enn í tungu, siðum og efnismenningu íbúa svæðisins og á þeim arfi byggja listamennirnir sjö verk sín. Myndlistakonan Málfríður Aðalsteinsdóttir er stjórnandi og upphafsmaður verkefnisins. Aðrir listamenn sem standa að sýningunni eru Elsie-Ann Hochlin og Johannes Vemren Rygh frá Noregi, Guðjón Ketilsson og Kristín Reynisdóttir frá Íslandi og Barbara Ridland og Roxane Permar frá Hjaltlandseyjum.
09:00 – 20:00 Við Garðarshólm
Veiðimenn norðursins. Ljósmyndasýning Ragnars Axelssonar, RAX. Myndirnar tók hann á Grænlandi.
09:00 – 20:00 Garðarshólmur
Saga eldgosa á Íslandi. Ljósmyndasýning Ragnars TH.
09:00 – 00:00 Á hafnarsvæðinu
Ljósmyndasýning Hafþórs Hreiðarssonar og Péturs Jónassonar. Þeir sýna myndir frá Húsavík, Skjálfandaflóa og nágrenni, þar sem bátar, ströndin og náttúran eru í fyrirrúmi.
09:00 – 18:00 Í sal Vísis
Lifandi handverk frá klasanum Þingeyskt og þjóðlegt; tréverk, vefnaður, prjón, hekl og margt fleira. Smiðja, þar sem gestum gefst tækifæri til að fylgjast með handverksfólki að störfum en einnig verður til sölu handverk unnið í smiðjunni.
09:00 – 18:00 Á hafnarsvæðinu
Bátasafnið á Reykhólum – sýning um bátasmíði.
09:00 – 18:00 Í hliðarsal rækjuvinnslunnar
Myndlistarklúbbur Húsavíkur. Á sýningunni er að finna myndir tengdar strandmenningu sem gerðar voru veturinn 2010-11.
09:00 – 18:00 Hjá Þekkingarneti Þingeyinga
Lárus H List sýnir í Þekkingarsetrinu.
09:00 -19:00 Í Hvalasafninu
Hægt er að sjá heillandi og fræðandi sýningu um stærstu dýr jarðar.
10:00 – 12:00
Kayak-námskeið fyrir byrjendur.
Á vegum Seakayak Reykjavík. Skráning á msig@simnet.is / 8973386.
14:00 – 16:00
Kayak-námskeið fyrir lengra komna.
Á vegum Seakayak Reykjavík. Skráning á msig@simnet.is / 8973386.
11:00 – 18:00 Á hafnarsvæðinu
Markaður á höfninni.
Skemmtilegur markaður með áherslu á fjölbreyttar afurðir úr héraði; matvöru, handverk og hönnun m.a. frá Fjallalambi á Kópaskeri, Viðbót á Húsavík og Vogafjósi í Mývatnssveit.
10:00 – 16:00 Garðarshólmur
Garðarsstofa – opin alla daga hátíðarinnar. Þar er boðið upp á kaffi ásamt fróðleik um náttúruna og þátt mannsins í að móta hana.
10:00 – 18:00 Safnahúsið á Húsavík, menningarmiðstöð Þingeyinga.
Á jarðhæð Safnahússins er áhugaverð sýning um fornleifarannsóknir í Þingeyjarsýslum. Þar er gerð grein fyrir þeim mikla fjölda uppgrafta sem framkvæmdir hafa verið og sagt örlítið frá hverjum og einum. Sérstaklega er fjallað um merkilegt bátskuml sem fannst við Litlu-Núpa árið 2007.
Hinn 8. júlí verður opnuð sýning í listasal Safnahússins á 3. hæð á myndum Bárðar Sigurðssonar, sem var ljósmyndari frá Mývatnssveit í byrjun 20. aldar. Myndir hans þykja einstaklega fallegar og opna okkur sýn inn í íslenskt bændasamfélag og þjóðmenningu.
Leiðsagnir verða í Safnahúsinu á Húsavík, sjóminjasafni á mánudaginn 18. júlí og miðvikudaginn 20. júlí kl. 11.10.
Á Grenjaðarstað verða leiðsagnir þriðjudaginn 19. og fimmtudaginn 21. júlí kl. 15:00 á ensku og/eða dönsku.
10:00 – 17:00 Í gömlu verbúðunum
Listasviðasulta. Sýnendur eru Ása Ólafsdóttir, Baldur Kristjánsson, Heiðar Kristjánsson, Jóna Birna Óskarsdóttir og Röðull Reyr Kárason og eiga þau öll ættir að rekja til Húsavíkur. Eins og áður verða verkin fjölbreytt og ýmsir miðlar nýttir við sköpunina. Til dæmis má sjá á sýningunni ljósmyndir, teikningar, málverk, skartgripi og nytjahluti úr postulíni.
09:00 – 18:00 Í Vísishúsinu
Sýningar sem koma með þátttakendum frá Noregi og Svíþjóð verða opnar alla daga hátíðarinna. Þær eru:
Hátíðarsigling til Íslands 1974.
Kvikmynd, ljósmyndasýning og fyrirlestur um tvo norska fimmæringa sem sigldu frá Noregi til Íslands árið 1974 í tilefni landnámsafmælisins.
Verðmæti strandmenningar – frá Heimsminjasafninu Vega á vesturströnd Noregs.
Menningararfur og verðmætasköpun.
Sögusýning um dúntekju frá æðarfugli, veiðarfæri og þurrkhús.
Halsnøybáturinn – tvö þúsund ára bátasaga.
Sýning og kvikmyndasýning um Halsnøybátinn, en hann er einn af elstu þilbátum sem fundist hafa á Norðurlöndum, frá u.þ.b. 100 – 300 e. Krist. Slíkir bátar voru saumaðir saman með böndum úr linditrjám og róið með árum. Fyrsta og eina eftirlíkingin var búin til í Suður-Hörðalandi árið 2008.
Tóvinna – fornar evrópskar tóvinnuhefðir
Frá örófi alda til okkar daga. Jan Steinsland býr til þráð úr trjátrefjum með einföldum verkfærum.
Hákarlaævintýri / Longlining for dogfish
Kvikmyndasýning, ljósmyndir og texti um hvernig línuveiðar á hákarli þróuðust á tuttugustu öld í Sogni og Fjörðunum í Noregi. Texti á norsku og ensku.
Hefðir í heimaframleiðslu
Handverksfólkið Arthur Johansen, Lisbeth Skranes og Sonja Isaksen vinna handverk og heimilisiðnað; vefnað, prjón, þæfingu, netagerð, bætingar og fleira sem tengist handverki þurrabúðanna.
Haf mitt og strönd
Myndlistarsýning Signars N. Bengtsson. Hann sýnir málverk frá Blekinge í Svíþjóð. Signar er einn þekktasti málari héraðsins.
Handiðn í aldanna rás – reipslagarar að störfum
Sten Swedlund, Bo Lindahl og Lars-Gunnar Hult sýna hvernig reipi og kaðlar voru búin til við skipasmíðastöðina í Karlskrona frá árinu 1680 og fram á 20. öld.
Sjófuglsveiðar, matur og saga reipis
Hvalaskoðun með Norðursiglingu, brottfarir á hverjum degi kl. 8:50, 10:00, 12:00, 13:00, 13:30, 15:30, 17:00 og 20:15.
Sigling á seglskipi með Norðursiglingu að Lundey. Fugla- og hvalaskoðun. Segl hífð og drepið á vél ef byr leyfir. Brottfarir á hverjum degi kl. 9:30 og 16:30. Nánari upplýsingar í síma 4647272 og á info@nordursigling.is
Hvalaskoðun með Gentle Giants, brottfarir á hverjum degi kl. 8:45. 9:45, 12:00, 13:15, 15:15, 16:45 og 20:15.
Lundaskoðunarferðir með Gentle Giants, brottfarir á hverjum degi kl. 9:00, 11:00 og 18:00.
Nánari upplýsingar í síma 464 1500 og á info@gentlegiants.is.
Mánudagur 18. júlí
09:00 – 11:30 Garðarshólmur
Hvað er strandmenning? Málþing í húsi Garðarshólma.
Í norrænum tungum er hugtakið strandmenning ungt. Hvað er strandmenning og hvernig geta þjóðirnar nýtt sameiginlegan menningararf sinn?
Bátar og handverkshefðir. Jon Bojer Godal, rithöfundur og sérfræðingur um báta og handverkshefðir.
Dönsk strandmenning. Poul-Erik Clausen, formaður Landsambands um strandmenningu og trébáta í Danmörku.
Þjóðhagsleg áhrif menningararfsins. Per-Inge Lindquist frá European Maritime Heritage.
11:00 – 12:00 Í Skansinum
Barnaskemmtun - Dúó Stemma
Herdís Anna Jónsdóttir (víóla) og Steef van Oosterhout (slagverk), hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, hafa sett saman skemmtilega og fræðandi dagskrá fyrir börn á öllum aldri.
12:00 – 13:00 Í hátíðartjaldi
Sögur af sjónum.
Viðtöl við fólk sem er hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur strandmenningu. Einar Már segir frá og les upp ljóð. Áhorfendum gefst kostur á að spyrja spurninga úr sal. Gestir geta keypt ljúffenga fiskisúpu Naustsins.
13:00 – 15:00 Í hliðarsal rækjuvinnslunnar
Myndlistarklúbbur Húsavíkur býður börnum að munda pensilinn.
13:30 – 14:30 Garðarshólmur
Fyrirlestur Dr. Marianne Rasmussen sjávarlíffræðings, um samskipti tannhvala.
14:30 – 16:00 Garðarshólmur
Hátíðarsigling til Íslands 1974.
Kvikmynd og fyrirlestur um tvo norska fimmæringa sem sigldu frá Noregi til Íslands árið 1974 í tilefni landnámsafmælisins.
16:00 – 20:00 Um borð í Húna II.
Landlega – Að splæsa tóg.
Reyndir sjómenn sýna og kenna splæsingar og ýmsar kúnstir með tóg og reipi. Ingi Pétursson og Ellert Guðjónsson sýna og kenna áhorfendum m.a. að hnýta ýmsa hnúta og splæsa.
Landlegur voru algengar á vertíðum áður fyrr þegar bátar voru almennt minni og næmari fyrir vondum veðrum. Þá var tíminn nýttur til viðhalds, lagfæringa eða að útbúa hluti sem nota átti seinna. Þá var einnig slegið á létta strengi, tekið í spil eða nikku.
16:00 – 18:00 Um borð í MS Sjøkurs
Hafið lokkar og laðar
Íslensk tónlist verður leikin af vinylplötum þar sem sjómannslífið er viðrað í tónlist. Spiluð verða lög sem hafa gegnum tíðina ornað sjómönnum og ástvinum þeirra um Norðurlöndin öll og mörg hver orðið vinsæl meðal almennings. Á milli laga verður trollið dregið inn, fullt af fróðleik um lögin, listamennina og tíðarandann. Kynnir verður Kristján Frímann.
17:00 – 20:00 Garðarshólmur
Garðarshólma ýtt úr vör
Garðarshólmi formlega ýtt úr vör. Athöfnin er öllum opin. Ávörp flytja:
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi og Anders Ljungren, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi.
Ragnheiður Gröndal og Ylfingarnir sjá um tónlistarflutning.
20:00 – 22:00 Garðarshólmur
Living on the edge.
Heimildarmynd sem var að stórum hluta tekin á Húsavík, og fjallar um náttúruöflin hér og samskipti fólksins við þau og það sem Ísland gefur af sér. Jarðhitann, fiskinn og aðrar auðlindir Íslands.
20:30 – 22:30 Í hátíðartjaldi
Harmonikkuleikarar úr Harmonikkufélagi Þingeyinga leika létt lög.
Þriðjudagur 19. júlí
9:30 – 12:30 Garðarshólmur
Garðarsbrunnur
Fyrirlestraröð um þema Garðarshólms; sambúð manns og náttúru. Erindi flytja: Kirsten Hastrup, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla, Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða, Stephan Barthel, Stockholm Resilience Centre, Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóganna, Skógrækt ríkisins, Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri og Ari Trausti Guðmundsson, fræðimaður og rithöfundur.
10:00 – 13:00 Mæting á upplýsingamiðstöð Sail Húsavík
Leiklistarnámskeið – fyrri hluti.
Spunanámskeið fyrir 10-13 ára krakka. Tveggja daga námskeið þar sem lögð er áhersla á grunntækni í leiklist og krakkarnir læra að búa til sögur og búa til leikrit með spuna. Námskeiðið endar á stuttri leiksýningu fyrir vini og fjölskyldur þátttakenda. Seinni hlutinn fer fram miðvikudaginn 20. júli.
Skráning í upplýsingamiðstöð og á skraning@sailhusavik.is / 847-3454. Námskeiðið kostar 2.500 kr og veittur er 10% systkinaafsláttur.
12:00 – 13:00 Í hátíðartjaldi
Sögur af sjónum.
Viðtöl við fólk sem er hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur strandmenningu. Í dag sitja Rita Johansen frá Verdensarv (Heimsminjasafninu) Vega á Vesturströnd Noregs og Sif Jóhannsdóttir fyrir svörum. Áhorfendum gefst kostur á að spyrja spurninga úr sal. Gestir geta keypt ljúffenga fiskisúpu Naustsins.
13:00 – 15:00 Í Hvalasafninu
Spennandi Hvalaskóli fyrir börn 8 ára og eldri.
13:00 – 15:00 Garðarshólmur
Spor á ströndu – Málþing.
Meðfram ströndinni finnum við spor liðinna tíma. Þekkjum við okkar eigin sögu og þau tækifæri sem í henni felast?
Maðurinn og hafið. Magnús A. Sigurðsson, fornleifafræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins.
Vangaveltur um sænska strönd. Signar N. Bengtson, listamaður, rithöfundur og sjómaður.
Hús við hafið. Magnús Skúlason, arkitekt hjá Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Heimsminjarnar á Vega. Rita Johansen, forstöðumaður Heimsminjasafnsins Vega á vesturströnd Noregs.
13:30 – 15:00 Í Húsavíkurvita
Hvalarannsóknir á Skjálfanda, vettvangsheimsókn í Húsavíkurvitaundir leiðsögn Dr. Marianne Rasmussen. Mæting hjá Þekkingarneti Þingeyinga.
16:00 –20:00 Um borð í Húna II.
Landlega – Bátur verður til.
Þorsteinn Pétursson sýnir gestum Húna II, segir frá sögu hans, byggingu og viðhaldi. Einnig greinir Þorsteinn frá skipasmíðum á Akureyri. Gestir fá að æfa sig í að slá hamp í rifur.
16:00 – 17:00 Garðarshólmur
Kvikmynd Valdimars Leifssonar um eldgosið í Eyjafjallajökli. Ari Trausti Guðmundsson kynnir myndina.
16:00 – 18:00 Um borð í MS Sjøkurs
Hafið lokkar og laðar
Íslensk tónlist verður leikin af vinylplötum þar sem sjómannslífið er viðrað í tónlist. Spiluð verða lög sem hafa gegnum tíðina ornað sjómönnum og ástvinum þeirra um Norðurlöndin öll og mörg hver orðið vinsæl meðal almennings. Á milli laga verður trollið dregið inn, fullt af fróðleik um lögin, listamennina og tíðarandann. Kynnir verður Kristján Frímann.
18:00 – 23:00 Skjálfandaflói
Landnámssigling.
Siglt verður yfir í Náttfaravíkur þar sem gestir geta mætt með eitthvað á grillið. Allir velkomnir, skráning á info@nordursigling.is og í síma: 464 7272.
20:00 – 22:00 Garðarshólmur
Roðlaust og beinlaust.
Kvikmyndasýning. Heimildarmynd eftir Ingvar Þórisson frá árinu 2009.
20:00 – 21:00 Í hátíðartjaldi
Tónleikar með Kristjönu Arngrímsdóttur.
21:00 – 22:00 Í hátíðartjaldi
Tónleikar með Brother grass
Miðvikudagur 20. júlí
09:00 – 11:30 Garðarshólmur
Bátar og bátasmíði – Málþing.
Á Norðurlöndum hefur hvert svæði sína hefð við smíði báta og þjóðirnar hafa einnig varðveitt menningararf varðandi siglingar hvert með sínum hætti.
Geitbåten frá Norðurmæri í Noregi og aðrir bátar frá vestnorrænu löndunum. Jon Bojer Godal, rithöfundur og sérfræðingur um báta og handverkshefðir.
Hefðir í bátasmíði í Blekinge. Christina Berup, forstöðumaður Minjasafnsins í Blekinge, Svíþjóð.
Siglingar verslunarskipa yfir Norðursjó. Kjell Magnus Økland, siglingakappi, rithöfundur og blaðamaður.
Hefðir í færeyskri bátasmíði. Bjarni Brattaberg, skipstjóri.
Um varðveislu báta á Íslandi – staða og stefna. Ágúst Georgsson, Þjóðminjasafni Íslands.
10:00 – 13:00 Mæting á upplýsingamiðstöð Sail Húsavík.
Leiklistarnámskeið fyrir 10-13 ára krakka, seinni hluti. Sýning í lok námskeiðsins.
11:00 – 12:00 Í Skansinum
Barnaskemmtun - Dúó Stemma. Herdís Anna Jónsdóttir (víóla) og Steef van Oosterhout (slagverk), hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, hafa sett saman skemmtilega og fræðandi dagskrá fyrir börn á öllum aldri.
12:00 – 13:00 Í hátíðartjaldi
Sögur af sjónum.
Viðtöl við fólk sem er hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur strandmenningu. Í dag sitja Jon Bojer Godal og Hafliði Aðalsteinsson skipasmiður og formaður áhugamannafélags um bátasafnið á Reykhólum fyrir svörum. Áhorfendum gefst kostur á að spyrja spurninga úr sal. Gestir geta keypt ljúffenga fiskisúpu Naustsins.
13:00 – 15:00 Garðarshólmur
Fyrirlestur – Arved Fuchs verndari Sail Húsavík og siglingakappi fjallar um siglingaleiðangra sína.
13:00 – 15:00 Tún við Stóragarð
Express-hugmyndasmiðja með menningarfélaginu Úti á túni.
14:30 – 16:00 Garðarshólmur
Súðbyrðingur – saga báts.
Heimildarmynd eftir Ásdísi Thoroddsen frá árinu 2010.
16:00 – 20:00 Um borð í Húna II.
Landlega - Saga bátasmíða á Akureyri og við Eyjafjörð.
Árni B. Árnason kynnir bátasmíðar við Eyjafjörð og á Norðurlandi. Árni kynnir upplýsingar sem hann hefur safnað á heimasíðu sína um bátasmíðar.
20:30 – 22:00 Í hátíðartjaldi
Óskalög sjómanna. Á frívaktinni með Stulla og Gómum. Helena Eyjólfsdóttir er heiðursgestur og kynnir er Aníta Elefsen.
22:00 – 23:00 Í hátíðartjaldi
Harmonikkuleikarar frá Harmonikkufélagi Þingeyinga leika létt lög.
Fimmtudagur 21. júlí
08:00 – 23:00
Sigling með Húna II til Siglufjarðar, skráning á info@sailhusavik.is / 847-3454.
09:00 – 11:30 Garðarshólmur
Hefðir og þjóðtrú – Málþing.
Algengt er að sjómenn sem og aðrir sem búa við sjóinn eigi sér sína hjátrú og haldi í hefðirnar.
Sjóskrímsli. Þorvaldur Friðriksson, rithöfundur og dagskrárgerðarmaður.
Hefðir í Færeyjum. Dana Dalsgaard, hjúkrunarfræðingur.
Grænlenskar hefðir og þjóðtrú. Birgitte Sonne, lektor við Stofnun um fræði Inúita (Afdeling for eskimologi) við Kaupmannahafnarháskóla.
„Mynt under masten“. Rabb um hjátrú sjómanna. Per-Inge Lindquist, Sjóminjasafninu í Karlskrona og formaður Seglbátafélags Svíþjóðar.
10:00 – 12:00 Í Hvalasafninu
Spennandi Hvalaskóli fyrir börn 8 ára og eldri.
12:00 – 13:00 Í hátíðartjaldi
Sögur af sjónum.
Viðtöl við fólk sem er hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur strandmenningu.
Áhorfendum gefst kostur á að spyrja spurninga úr sal. Gestir geta keypt ljúffenga fiskisúpu Naustsins.
13:00 – 15:00 Í hliðarsal rækjuvinnslunnar
Myndlistarklúbbur Húsavíkur býður börnum að munda pensilinn.
13:30 – 14:00 Garðarshólmur
Fyrirlestur Dr. Marianne Rasmussen um samskipti skíðishvala.
14:30 – 16:00 Garðarshólmur
Living on the edge.
Heimildarmynd sem var að stórum hluta tekin á Húsavík og fjallar um náttúruöflin, samskipti fólksins við þau og það sem Ísland gefur af sér; jarðhitann, fiskinn og aðrar auðlindir Íslands.
20:00 – 23:00 Á hátíðarsviði
Setning Mærudaga
Skrúðgöngur úr þremur hverfum Húsavíkur mætast. Hægt er að nálgast fjölbreytta dagskrá Mærudaga í sérstökum dagskrárbæklingi.
20:00 – 22:00 Garðarshólmur
Súðbyrðingur – saga báts. Kvikmynd eftir Ásdísi Thoroddsen frá 2010.
21:00 – 22:00 Í hátíðartjaldi
Svavar Knútur með fjölskylduvæna dagskrá.
22:30 – 23:00 Við bryggju Norðursiglingar
Gabrielle, þýskur rithöfundur fjallar um skrif sín um borð í hvalaskoðunarbáti.
Föstudagur 22. júlí
09:00 – 11:30 Garðarshólmur
Handverk og matur – Málþing.
Handverk og matarvenjur við sjávarsíðuna.
Síldin – menningararfleifð. Leif Stenholm, forvörður í minjasafninu í Blekinge, Svíþjóð.
Grindhvalur. Bjarni Pétursson frá Færeyjum.
Reipa- og kaðlagerð – alþjóðlegt mikilvægi. Sten Swedlund, frá Samtökum um sögu skipasmíðastöðva, og Hafnarminjasafni Svíþjóðar.
Sjökvarteret i Mariehamn og bátasmíði. Ebba Nordlund, Sjökvarteret í Mariehamn á Álandseyjum.
Þurrkaður fiskur – norrænar hefðir. Mads Holm, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá Norræna húsinu í Reykjavík.
10:00 – 12:00 Á bryggjunni
Dorgveiðikeppni í samvinnu við Naustið. Mæting við Naustið.
11:00 – 14:00 Í höfninni
Kappsigling / Regatta. Staðsetning fer eftir vindum og veðri. Allir seglbátar á svæðinu munu taka þátt í keppninni.
12:00 – 13:00 Í hátíðartjaldi
Sögur af sjónum. Viðtöl við fólk sem er hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur strandmenningu. Gestir geta keypt ljúffenga fiskisúpu Naustsins.
16:00 – 20:00 Um borð í Húna II.
Landlega – Landleguvalsinn.
Harmonikkutónar og almennur söngur með þátttöku gesta. Harmonikkuleikararnir Númi Adólfsson og Kristján frá Gilhaga spila vinsæl sjómannalög og stjórna fjöldasöng.
17:00- 19:00 Í Samkomuhúsinu
Vísnakvöld í boði Mærudaga.
20:00-21:30 Á fótboltavelli
Völsungar – Fram. Meistaraflokkur kvenna í 1. deild.
20:00 – 23:00 Á hátíðarsviði
Tónleikar.
Fram koma Hjaltalín, Raggi Bjarna og margir fleiri.
Laugardagur 23. júlí
Í dag rennur dagskrá Sail Húsavík saman við Mærudaga. Í boði verður meðal annars tívolí, krakkahlaup og leiktæki fyrir börnin.
10:00 – 11:30 Frá Húsavíkurkirkju
Pílagrímaganga, gengið verður frá Húsavíkurkirkju.
10:00 – 14:00
Hraðfiskmót Gentle Giants og fiskframleiðslunnar GPG.
13:00 – 18:00 Á hafnarsvæðinu
Hafnarmarkaður Kvenfélags Húsavíkur.
13:00 – 14:00 Í Skrúðgarðinum
Mjallhvít og dvergarnir sjö, með leikhópnum Lottu.
15:00 – 17:00
Hrútasýning í Skansinum.
15:30 – 17:00 Í Suðurfjöru
Gæðingasýning Grana.
16:00 – 18:00 Á fótboltavelli
Völsungur – ÍH. Meistaraflokkur karla í 2. deild.
17:00 – 18:00 Í Skrúðgarðinum
Mjallhvít og dvergarnir sjö, með leikhópnum Lottu.
20:00 – 21:00 Í Suðurfjöru
Brenna og fjöldasöngur fyrir alla fjölskylduna.
21:00 – 01:00 Á hátíðarsviði
Tónleikar.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar, ítarlegri dagskrá Sail Húsavík er hægt að nálgast í upplýsingamistöð Sail Húsavík og á heimasíðu hátíðarinnar.
Dagskrá Mærudaga er að finna í sérstökum dagskrárbæklingi.




