
Halsnøybáturinn er einn af elstu plankabyggðu bátum sem fundist hafa á Norðurlöndum, frá u.þ.b. 100 – 300 eftir Krist. Bátarnir voru saumaðir saman með tógi úr linditrjám og róið með árum. Fyrsta og eina eftirlíkingin var búin til í Suður-Hörðalandi árið 2008.




