
Haugefisk var smíðaður árið 1978 á skipasmíðastöðinni H & E Nordtvedt á Fusa í Hörðalandi. Skipið var notað til línuveiða á tímabilinu 1978-2005 og er eitt af fyrstu skipunum sem var smíðað fyrir þessa nýju tækni. Árið 2005 var skipið undanþegið úreldingu. Í skipinu er 6 hestafla sexstrokka Alpha díselvél. Engar breytingar hafa verið gerðar á skipinu. Nýrri tækjabúnaður hefur verið fjarlægður og það á að gera það upp svo það verði eins og það var um 1990. Eigandi í dag er Strandsafnið í Sogni og Fjörðunum (Kystmuseet i Sogn og Fjordane) sem mun nota skipið sem safn, til menningarmiðlunar og kennslu. Haugefisk á að vera fljótandi menningararfur og er fulltrúi fyrir nútíma fiskveiðisögu Noregs.
Heimahöfn: Bremanger, Sogn og Fjordane
Byggingarár: 1978
Lengd: 26,560 m
Brúttó tonn: 329




