Sail Húsavík er norræn strandmenningarhátíð, sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Að hátíðinni standa grasrótarsamtök á Norðurlöndum, Norræna húsið og heimamenn. Þátttakendur verða víðsvegar að úr Skandinavíu og frá Íslandi, samskonar hátíð verður haldin ári seinna í Ebeltoft í Danmörku svo Osló í Noregi o.s.frv. Nokkrir tugir skipa munu koma siglandi á hátíðina bæði frá Íslandi og í Skandinavískri sam- siglingu frá Noregi með viðkomu í Hjaltlandseyjum og Færeyjum.
Markmið hátíðarinnar er að stuðla að eflingu strandmenningar hér á landi og að efla tengsl á sviði siglinga og strandmenningar við nágranna þjóðir okkar í Skandinavíu og norður Evrópu.
Sail Húsavík er fyrst og síðast fjölskylduhátíð. Þar verður hægt að skoða falleg fley, upplifa töfra hafs og strandar, fræðast, njóta og gleðjast. Viðburðir verða í formi fyrirlestra, sýninga, tónleika, leiklistar, dans og síðast en ekki síst að upplifa þá mögnuðu stemningu sem skapast á bryggjunni þegar margir unnendur sjávar og strandmenningar koma saman.
Líkt og áður hefur komið fram er markmið hátíðarinnar að stuðla að eflingu strandmenningar hér á landi og það felur í sér að bjóða upp á viðburði sem geta stuðlað að frekari uppbyggingu, atvinnuþróun og rannsóknum á því sviði. Á hátíðinni verður m.a. að finna málþing þar sem sérfræðingar frá Norðurlöndunum koma saman og deila þekkingu sinni á strandmenningu með hvor öðrum og þátttakendum. Málþingin eru þátttakendum að kostnaðarlausu.




